Ung kona frá Egilstöðum skrifar um mál málanna og sýnir það hvað
fólk er yfirvegað og sýnir mikla stillingu á þessum erfiðu tímum.
Kópí pasta og hér er greinin:

Ég er að reyna að komast ekki á reiðistigið í “sorgarferli” mínu í
umrótinu sem ríður öllu í dag.
En, það er að mistakast og maður sér alltaf í bíómyndum að maður
eigi að “skrifa” sig frá því sem plagar mann. Só itt gós…..

FOKKJÚ SKÍTA ANDSKOTANS HELVÍTIS DJÖFULSIN DRULLA……

Takk andskotans drulluháleistar sem skriðu úr endaþarmi móður
ykkar, “útrásarvíkingatussur”.
Takk fyrir að stofna lífshögum mínum í hættu.
Takk fyrir að ógna félagslegu öryggi mínu.
Takk fyrir að stofna fjárhagslegu sjálfstæði mínu í hættu.
Takk fyrir að gera börn mín eilífðar skuldbundin Rússaandskotum
eða Alþjóðaglæpagjaldeyrissjóðnum.
Takk fyrir að gambla með peningana mína fyrir lystifokkingsnekkjur
og rándýrar íbúðir á uppsprengdu verði í helstu höfuðborgum heims.
Takk fyrir að vera ósýnilegir en forhúðarostalyktin kemur upp um
ykkur helvístis sveppagerlarnir ykkar. Hvar eru forsíðurnar nú af
ykkur akandi um á Lexusum og Range Roverum? HVAR ERU FOKKING
PENINGARNIR OKKAR?
Ætlið þið að borga húsnæðislánið mitt, sem er þó íslenskt
verðtryggt, en á ábyggilega eftir að rjúka upp í óðaverðbólgu?
Djöfull þurfið þið EKKERT að pæla í slíkum smáskít
kampavínssjúgandi lirfubellir, ánamaðkar holræsisins,
saurbjöllukúkarnir ykkar.

Hálfvitar, þið hafið gert Ísland að endaþarmi andskotans og
þjóðina að gyllinæðinni. Takk fyrir það.

Ef einhverntíman kemur til þess, helvítis andskotar, að ég missi
þakið yfir höfuðið, get ekki gefið börnum að borða eða veitt þeim
heilbrigðisþjónustu. Þá skal ég láta ykkur vita eitt. Heimurinn er
lítill og það er ekki nokkur kjaftur á þessu andskotans guðsvolaða
skeri sem hefur nokkurra hagsmuna að gæta gagnvart ykkur. Þið
skuluð fokking biðja til Óðins að restin að aurum ykkar dugi fyrir
ferð til fokkings tunglsins. AÐRALEIÐ.

Drulluháleistar.

Ég þakka áheyrnina. mér líður mun betur og held að ég hafi komið
mér í gegnum margra daga prósess í “sorgarferli” mínu með þessum
hætti.

“Thats just what I was going to say!”

4 Svôr við “smá saga úr kreppunni”
  1. Halldór segir:

    Já sæll…

  2. Ari. segir:

    heyrðu,, Árni. farðu í framboð…

  3. Árni segir:

    öhhh afhverju ?
    og hver er Ari :)

  4. Fanney Sig segir:

    Vá hvað hún er reið og ég elska svona færslur sem eru skrifaðar í “augnablikinu sem öll tilfinning er”

Skilja eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>