Jesús pétur hvað það er stutt í þetta, þarf ekki nema rétt að vinna morgun dagin, klára smávegis verslun á áfengi og blandi og síðan kemur Fanney um kvöldið…
Eitthvað segir mér að það verði tekinn tappi úr flösku strax á miðvikudags kvöld
skillst að Gunnar Friðberg sé jafnvel að pæla í að taka smá djamm með okkur þá.
Síðan ætlar hann Bjössi Cuomo að koma á fimmtudeginum og ætlar einmitt að tjalda í garðinum heima, ætli maður þurfi nú ekki aðeins að sýna honum hvernig það er tekið á því á þjóðhátíð
en annars segi ég nú bara mest lítið
Halldór, það er eins gott fyrir þig að vera með kveikt á símanum hjá þér, þar sem að ég ætla mér að bögga þig alveg helling !
t.d. hringja í þig einhvern tíman um það leiti þegar að kveikt verður á brennunni (segja þér hvort að við hittum gæslu kallinn okkar aftur (minnir að hann heiti ingi))
pottþétt að maður bjallar í þig þegar að Bubbi kemur á svið og líka þegar að johnsen tekur þjóðsönginn
bara svona uppá að bögga þig smávegis fyrir að vera ekki þarna með okkur.
mental note to self. kaupa tonn af inneign.

Færslur (RSS)