Safn fyrir maí, 2008

Já kolla… betra er seint en aldrei :)

en já.. ég semsagt lofaði fyrir mörgum dögum síðan að blogga… steingleymdi því síðan og hef ekki nennt því síðan að ég mundi það, ekki fyrr en núna.

Ég og Fanney ákváðum semsagt í byrjun mánaðarins að koma þeim Halldóri, Jóni og Freysa baunaveldisbúunum sem að við þekkjum á óvart.

málið er að mig hefur alltaf langað til þess að kíkja í söpræs heimsókn til halldórs (þekki hann einfaldleg lang mest af þeim 3, þess vegna nefni ég hann)

og spurði hana Fanney hvort að hún væri til í að taka þátt í því, hún tók alveg ágætlega í það þegar að það var búið að ræða það smávegis (á sunnudegi og mánudegi)

á þriðjudeginum tók ég lokaákvörðun um að fara (þá var Fanney ekki endanlega búin að staðfesta það) og fékk frí í vinnu á föstudeginum (fimmtudagurinn var 1. maí þannig að ég var í frí þann dag)pantaði miðan á miðvikudeginum (smá hint, ef að þið ætlið að koma einhverjum á óvart í öðru landi, ekki ákveða það með 2 daga fyrivara það er DÝRT) og seinna um dagin (eftir að ég hafði hótað fanney um að sækja taka hana með út á völl)þá ákvað Fanney að koma með líka og það var líka panntaður miði fyrir hana. nú jæja.. síðan ætlaði ég með herjólfi á fimmtudagsmorgni en svaf soldið mikið yfir mig og endaði á því að fara með flugi á fimmtudagsmorgninum og vá hvað það var mikill lúxus að þurfa ekki að fara með herjólfi í 3 tíma…. en jæja.. Þegar að þangað var komið þá þurfti ég að vesenast smá fyrir hana Fanney og hún að klára verkefni sem að hún þurfti að skila sama dag.

síðan leið og beið dagurinn, við vorum í sambandi við strákana öðru hverju á irc og msn (þá var ég búin að njósna það að halldór yrði allavega í fríi um helgina og að þeir ætluðu að halda matarboð sem að við vorum boðum í ef að við værum á landinu… nú þá sagði ég einmitt við hann “mig langar hvort eð er ekkert í þetta helvítis partý !!!” muhahahaha það sem að hann vissi ekki þá :)

en já… síðan var vaknað snemma (mjög snemma) á föstudagsmorgnu til þess að bruna til keflavíkur og þar var systir mín voða góð að geyma bílinn og skutla okkur upp á völl. nú jæja, þangað vorum við komin rúmlega 6 um morguninn fínn tími þar sem að flugið var 07:45 bókuðum okkur inn og skutluðumst í gegnum öryggistékkið (bara handfarangur, alger lúxus) síðan var það náttlega bara ölinn í leifstöð :) (ákváðum reyndar að kaupa smá íslenskt nammi og smá seagrams 7 handa Halldóri þar sem að hann fær það ekki þarna í köben.)

jæja… flug……

síðan þegar að kastrup var komið þtókum við endalega lokaákvörðun um að fara bara heimtil þeirra en ekki láta þá sækja okkur uppá völl (var búin að hóta halldóri því að hann þyrfti einhvern tíman að sækja mig upp á völl án þess að vita af mér) en jæja.. skutluðumst í gegnum kastrup og tókum lestina niðrí örestað sem að er beint fyrir framan fields verslunarmiðstöðina og það vill svo vel til að þeir búa bara þar beint fyrir aftan.

jæja… vorum mjög heppin þegar að við komum að húsinu þar sem að það er læst alltaf, fengum einhvern norsara til þess að hleypa okkur inn sem að var nú ekki alveg til í það fyrr en við sögðum honum afhverju og gátum bent á nafnið þeirra á bjöllunni) nú jæja… lyftan upp og dinglað….

og dinglað…

og dinglað… engin kemur til dyra :S ahh smá hljóð, jón kemur til dyra alveg svona skemmtilega myglaður (Fanney á mynd af því actuly) og vá hvað hann var hissa, en hann var í bestu aðstöðunni, var reyndar vaknaður þegar að við bönkuðum. en það voru Halldór og Freysi ekki :) (freysi heldur því enn fram að við höfum vakið hann fyrir hádegi, en klukkan var rétt um 14:00 að dönskum tíma) þeir báðir rétt náðu að henda sér í slopp og smá föt áður en við ruddumst inn og vá hvað menn voru hissa :) (sagði einmitt þá við Halldór okkur langaði alveg í þetta helvítis partý :)

síða var náttlega farið út að éta og í bjór, og að versla bjór, og aðeins meira af honum.

drukkinn hellignur af honum og svoleiðis á föstudagskvöldinu… og faið á kollegí barin og teknir nokkrir drykkjuleikir með skotum hægt að kaupa 10×2 cl staup á 100 krónur danskar það voru keyptir alveg 2 eða 3 bakkar það kvöldið…..
síðan kom laugardagur og slatti af fólki kom í heimsókn og í matinn sem að var þarna um kvöldið jæja, það var mikið drukkið og borðað, síðan var ákveðið að fara á pöbbinn, happy hour á kollegíbarnum, þannig að þú fékkst tuborg í gleri fyrir 5 krónur.. semsagt gast komið með 1 klink og fengið 4 bjóra, og það á bar… (ffs 4 bjórar á 320 kall meirað segja ríkið hérna bíður ekki svona díl)

jæja.. þar var ákveið að drekka nokkra bjóra (ég Fanney og Halldór fórum þangað aðeins á undan hinu liðinu) nú ég og halldór fórum langleiðina með að slátra 3 bökkum einsog ég sagði frá áðan og vorum orðnir svona ágætlega í glasi.

síðan kom restin af liðinu og það var farið og keyptur 1 bakki í viðbót og hann var fljótur að fara þannig að þá var ákveðið að kaupa annan, nema þá fengum við bara restina af flöskunni, ca 15 - 17 staup eftir í henni :) og rosalega góð stemmning bara…

nema einhverjum fannst vanta aðeins fleyri staup (ábiggilega mér og halldóri, kannski freysa líka) þannig að það var bara farin og keypt ein flaska af fisherman 1 ltr. fengum hana á einhvern 360 kr danskar og milljón staup með. gerum langa sögu stutta. hún var kláruð af okkur, vorum ca 5 - 7 sem að tókum staup úr henni.

síðan ákvað helvítið hann freysi að kaupa hotnsweet þar sem að við vorum búnir með fisherman lagerinn þarna. og vá hvað það fór illa í mig, þá fyrst varð ég virkilega rosalega mikið fullur og halldór reyndar eitthvað pínulítið líka, þannig að við ákváðum að fara að pilla okkur heim, þar sem að ég einmitt ákvað að faðma aðeins postulínsskálin og syngja fyrir hana nokkur lög og sofna síðan hjá henni (Fanney ofboðslega ekki sátt þar sem að ég lofaði víst að halda mér vakandi þangað til að pizzan sem að við pöntuðum kæmi, en Halldór var einmitt steinsofnaður líka…)

svona endaði kvöldið hjá mér :(

en aftur á móti það besta er að Freysi sem að er svipað vaxinn og ég, nema aðeins minni kannski, var drukkinn undir borðið af 50 kg, stelpu sem að er 160 á hæð :)

jæja.. síðan var ákveðið að vakna “snemma” á sunnudeginum og pillað sér upp á völl um 12ish (flogið rétt um 2 að dönskum tíma) og tekinn einn bjór þar svona til að róa taugarnar (freysi reyndar gat engan vegin vaknað)

þar með endaði alveg helvíti góð ferð til köben og vá hvað ég á eftir að gera þetta einhvern tíman aftur (nema nota þá kannski www.dohop.is og fara kannski lengri leiðina)

en vá hvað ég nenni ekki að skrifa meira núna…

Comments 8 Athugasemdir »